Tryggingar hjá Landsbankanum
Bankaþjónusta og tryggingar eiga vel saman. Nú geta viðskiptavinir Landsbankans fengið tryggingar og bankaþjónustu á sama stað, með betri yfirsýn og fríðindi í kaupbæti.

hugmyndavinna
grafísk hönnun
textasmíði
hreyfigrafík
framleiðsla
birtingar
Landsbankinn og TM sameina þekkingu og reynslu sem á sér vart hliðstæðu hér á landi. Landsbankinn sér um tryggingaráðgjöf og þjónustu við viðskiptavini, TM vátryggir og komi til tjóns tekur tjónaþjónusta TM við.
Viðskiptavinir bankans fá betri kjör á tryggingum auk annarra fríðinda, m.a. endurgreiðslu á tryggingum eftir tjónlaust ár og aðgang að Velferðartorgi bankans, sem tengir viðskiptavini við sérfræðinga á borð við sálfræðinga, svefnráðgjafa og talmeinafræðinga.


Markaðsefnið byggir á lifandi og fallegum augnablikum þar sem heimilið, hversdagurinn og fólkið sem stendur okkur næst er í forgrunni. Myndheimurinn og skilaboðin eru einföld, hlýleg og með beina tengingu við slagorð bankans: Við erum betri saman.







